Fotbolti.net
29.08.17 - 09:45
Magnús Már Einarsson

Kevin Wimmer til Stoke (Staðfest)

Kevin Wimmer til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur keypt varnarmanninn Kevin Wimmer frá Tottenham á 18 milljónir punda.

Hinn 24 ára gamli Wimmer skrifaði undir fimm ára samning við Stoke.

Wimmer kom til Tottenham frá Köln árið 2015 en hann byrjaði einungis fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
„Kevin er með ótvíræða hæfileika. Hann bætir miklum gæðum við hópinn sem við höfum hér,\" sagði Mark Hughes stjóri Stoke.

Wimmer er sjöundi leikmaðurinn sem Stoke fær í sumar á eftir Bruno Martins Indi, Josh Tymon, Kurt Zouma, Jese Rodriguez, Darren Fletcher og Eric Maxim Choupo-Moting.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.