Fotbolti.net
29.08.17 - 07:28
Magnús Már Einarsson

Naby Keita til Liverpool næsta sumar (Staðfest)

Á leið til Liverpool.

Á leið til Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur staðfest að miðjumaðurinn Naby Keita muni koma til félagsins frá RB Leipzig í Þýskalandi þann 1. júlí á næsta ári.
Liverpool hefur reynt að krækja í Keita í allt sumar. Leipzig hafnaði meðal annars tilboði frá enska félaginu upp á 72 milljónir punda á dögunum.

Næsta sumar er Keita með klásúlu um að hann megi fara frá Leipzig á 48 milljónir punda.

Liverpool greiðir það verð og nokkrar milljónir að auki fyrir forkaupsrétt á leikmanninum. Kaupverðið er þar með það hæsta í sögu Liverpool.

Hinn 22 ára gamli Keita er frá Gíneu en hann skoraði átta mörk í 31 leik þegar RB Leipzig endaði í 2. sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.