Fotbolti.net
29.08.17 - 19:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Tyrkneski Messi til Celta Vigo (Staðfest)

Emre Mor hefur yfirgefið Dortmund

Emre Mor hefur yfirgefið Dortmund

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þýska stórliðið, Borussia Dortmund, tilkynnti nú í dag að það hefði selt tyrkneska landsliðsmanninn, Emre Mor, til Celta Vigo. Mor hefur verið orðaður við brottför frá Dortmund í allt sumar og hann hefur nú óvænt gengið í raðir spænska félagsins.

Þessi tvítugi sóknarmaður hefur verið orðaður við stórlið eins og Inter, Liverpool og Everton í sumar ásamt Torino og Fiorentina.

Celta Vigo hafa þó náð að klófesta hann og er kaupverðið talið vera metfé, 13 milljónir evra.

Mor ólst upp í Danmörku og spilaði meðal annars undir stjórn Ólafs Kristjánssonar hjá Nordsjælland. Hann kom til Dortmund síðasta sumar en hann vildi komast þaðan í burtu til þess að fá fleiri mínútur á vellinum.

Hann spilaði aðeins 19 leiki fyrir Dortmund þar af þrettán þeirra sem varamaður.

Viðtal við Ólaf Kristjánsson um Emre Mor má finna hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Tyrkneski Messi mætir á Laugardalsvöll
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.