Fotbolti.net
29.08.17 - 19:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Yngri bróðir Hazard til Chelsea (Staðfest)

Kylian Hazard (t.h.) er kominn til Chelsea líkt og bróðir sinn

Kylian Hazard (t.h.) er kominn til Chelsea líkt og bróðir sinn

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea tilkynnti í dag að þeir hefðu klófest enn einn Hazard bróðirinn í sínar raðir þegar þeir tilkynntu að þeir hefðu samið við Kylian Hazard, yngri bróðir Eden Hazard.

Kylian er því þriðji bróðirinn sem skrifar undir samning hjá Chelsea en áður höfðu að sjálfsögðu Eden og svo einnig miðbróðirinn Thorgan, sem var seldur til Borussia Mönchengladbach árið 2015.

Kylian kemur frá Ujpest í Ungverjalandi þar sem hann hefur spilað síðustu tvö ár. Hann er 22 ára gamall en hann hóf feril sinn í Belgíu með White Star Brussels. Áður en hann gekk svo í raðir Zulte-Waregem.

Bróðir hans Eden hefur verið að jafna sig af ökklabroti sem hann varð fyrir í byrjun sumars og talið er að hann verði kominn aftur á völlinn eftir landsleikjahlé.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.