29.08.19 - 19:47
Brynjar Ingi Erluson
Alexis Sanchez lánaður til Inter (Staðfest)

Alexis Sanchez er farinn til Inter

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez er farinn til Inter

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter staðfesti í dag komu Alexis Sanchez til félagsins en hann kemur á láni frá Manchester United.
Manchester United keypti Sanchez frá Arsenal í janúar árið 2018 en hann fann sig ekki með liðinu og skoraði aðeins 5 mörk í 45 leikjum.
Hann er nú farinn til Inter á Ítalíu en hann er lánaður út tímabilið með möguleika á að kaupa hann fyrir 15 milljónir evra.
Sanchez kann vel við sig á Ítalíu en hann lék 112 leiki með Udinese og skoraði 21 mark og lagði upp 20 á tíma sínum þar.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Inter fær frá United í sumar en belgíski framherjinn Romelu Lukaku kom á dögunum fyrir metfé.