29.08.19 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dalbert til Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fiorentina er búið að krækja í vinstri bakvörðinn Dalbert frá Inter.
Dalbert kemur til liðs við þá fjólubláu og verður út leiktíðina á láni. Fiorentina mun ekki hafa neinn forkaupsrétt á leikmanninum eftir lánið.
Dalbert gekk í raðir Inter frá Nice og kostaði árið 2017 21 milljónir evra. Síðan þá hefur hann aðeins spilað 26 leiki fyrir Inter.

Dalbert mun líklega koma til með að taka sæti Cristiano Biraghi sem er á leið til Inter, en það hefur ekki verið staðfest. Dalbert er 25 ára gamall og er Brasilíumaður.
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Cristiano Biraghi muni ganga í raðir Inter fyrir gluggalok.