Fotbolti.net
29.08.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Kasper Dolberg til Nice (Staðfest)

Kasper Dolberg.

Kasper Dolberg.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Nice hefur keypt framherjann Kasper Dolberg frá Ajax á 20 milljónir evra.

Dolberg er 21 árs danskur landsliðsmaður en hann hefur spilað með Ajax undanfarin þrjú ár.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Dolberg skorað 45 mörk í 121 leik með Ajax.

Jim Ratcliffe, ríkasti maður Englands, keypti Nice í vikunni og ætlar sér stóra hluti með félagið en kaupin á Dolberg eru fyrsti liðurinn í því.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.