Sævarssynir upp í Bestu: Fínt að fá brósa í Mosó til að klára þetta - Þetta var planið frá að ég kom hingað

Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Már Sævarsson, leikmaður Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Elí Sævarsson og Birkir Már Sævarsson spiluðu báðir allan leikinn þegar Afturelding vann Vestra á heimavelli 2-0. Sigurinn þýddi að liðið er sigurvegari Lengjudeildarinnar 2026 þegar ein umferð er eftir af móti. Bræðurnir sem voru sameinaðir í liðið fyrir tímabilið geta því heldur betur verið sáttir með sína vinnu og klúbbsins. Aron Elí fyrirliði lyfti auðvitað bikarnum eftir leik en þeir mættu síðan í tvennu viðtal eftir fögnuð við Fótbolta.net.
Aron Elí: „Tilfinningin er yndisleg, við erum búnir að bíða lengi eftir þessu hérna í Aftureldingu og fínt að fá brósa í Mosó til að klára þetta."
Birkir Már: „Geðveik tilfinning, þetta var planið frá að ég kom hingað. Geðveikt að hafa smollið frábærlega inn í þetta lið. Þetta er frábært lið sem hefur verið lengi saman, vel spilandi og auðvelt að koma í þennan hóp og liðið."
Aron Elí var auðvitað fyrirliði Aftureldingar líka þegar þeir tryggðu sér sæti í Bestu Deildinni gegnum umspilið fyrir tveimur tímabilum. Spurður hvort þetta sé betra hafði hann þetta að segja: „Já þetta er það. Líka bara það var svo mikil pressa á okkur einhvern veginn undafarið og við erum búnir að spila ógeðslega vel. Maður finnur einhvern veginn miklu betri tilfinningu farandi í svona leik heldur en að fara í úrslitaleik og vinna hann á einhverjum bardaga. Við sýndum yfirburði í síðustu leikjum og vinnum þetta sannfærandi. Þannig að það gerir það sætara."
Tímabilið þó alls ekki búið hjá bræðrum og Aftureldingu, ennþá einn leikur í deildinni og síðan Bikar úrslitaleikur þann 11.sept. Birkir Már: „Bara mjög vel stefndir held ég. Klárum þennan leik móti Njarðvík eins og menn. Halda okkur í góðum rhytma af því það er mikilvægt að koma á góðri siglingu í bikar úrslitaleikinn."
Það verður væntanlega fagnað samt í kvöld var loka spurningin, Aron Elí tók hana: „Já, maður var að reyna hugsa ekki of langt fram í tímann og reyna klára leikinn fyrst og allt það, en mér heyrist menn vera í góðu stuði og við erum að fara inn í klefa með smá læti í viðbót og svo verður kannski eitthvað fram á kvöld."
Viðtalið við bræðurna má sjá í spilaranum hér að ofan.

Birkir Már Sævarsson, leikmaður Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
