29.09.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Cotterill tekur við Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur ráðið Steve Cotterill sem knattspyrnustjóra sinn.
Cotterill tekur við af Harry Redknapp sem var rekinn á dögunum eftir sex töp í röð.
Cotterill var aðstoðarmaður Redknapp hjá Birmingham undir lok síðasta tímabils.
Hinn 53 ára gamli Cotterill hætti störfum hjá Birmingham í sumar en hann hefur nú skrifað undir tveggja og hálfs árs samning hjá félaginu.

Lee Carsley, fyrrum miðjumaður Everton og Birmingham, verður aðstoðarstjóri Birmingham en hann var áður með U23 ára liðið.