29.09.17 - 12:16
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Logi í FH (Staðfest)

Hjörtur Logi Valgarðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Vinstri bakvörðurinn Hjörtur Logi Valgarðsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt FH á nýjan leik.
Hjörtur Logi gengur þar með til liðs við FH frá sænska liðinu, Örebro en liðið er í 9. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Hjörtur sem er 29 ára hefur leikið með Örebro síðustu þrjú tímabil.
Þar áður lék hann með Sogndal í Noregi og IFK Gautaborg.
Hjörtur Logi sem er uppalinn í FH varð Íslandsmeistari með liðinu árin 2008 og 2009 en hann fór út til Svíþjóðar eftir tímabilið 2010.
Hann á að baki tíu landsleiki en síðasti landsleikurinn sem hann spilaði var æfingaleikur gegn Finnum í janúar í fyrra.
Áhugavert verður að sjá hver verður vinstri bakvörður hjá FH á næsta tímabili en fyrir hjá félaginu er bakvörðurinn öflugi Böðvar Böðvarsson.

Hjörtur Logi Valgarðsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH. Við bjóðum Loga hjartanlega velkominn heim í Kaplakrika #ViðerumFH pic.twitter.com/Oqca0cK3mi
— FHingar.net (@fhingar) September 29, 2017