Fotbolti.net
29.10.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Björgvin Vilhjálms tekur við Ægi (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.  Frá vinstri: Guðbjartur Örn formaður, Björgvin Freyr Vilhjálmsson og Sveinn Jónsson stjórnarmaður).

Frá undirskriftinni í dag. Frá vinstri: Guðbjartur Örn formaður, Björgvin Freyr Vilhjálmsson og Sveinn Jónsson stjórnarmaður).

Canon

Mynd: Ægir

Knattspyrnufélagið Ægir hefur komist að samkomulagi við Björgvin Frey Vilhjálmsson um að taka við þjálfun meistarflokks karla næstu tvö tímabil.

Ægir féll úr 2. deild í sumar á markatölu og spilar því í 3. deild næsta sumar.
Björgvin er fæddur 1979 og hefur leikið á sínum fótboltaferli með KR, ÍR, Fylki og Víkingi ásamt því að spila eitt tímabil í dönsku 1 deildinni.

Hann tók við Þrótti Vogum um mitt síðasta sumar og endaði í 5. sæti með liðinu í 3. deildinni.

„Stjórn Ægis býður Björgvin Frey hjartanlega velkomin til starfa. Markmið félagsins eru skýr og stefnan sett upp á ný í 2.deild á samningstímanum,\" segir í fréttatilkynningu frá Ægi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.