Fotbolti.net
29.10.16 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Sigurður Brynjólfs nýr aðstoðarþjálfari Gróttu (Staðfest)

Sigurður Brynjólfs nýr aðstoðarþjálfari Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Sigurður Brynjólfsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Gróttu á Seltjarnarnesi.

Þórhallur Dan Jóhannsson var ráðinn þjálfari Gróttu í vikunni og Sigurður verður honum til aðstoðar.
Sigurður hefur undanfarnin fjögur tímabil þjálfað Álftanes en hann var þar á undan leikmaður liðsins.

Þórhallur Dan þjálfaði Sigurð hjá Álftanesi árin 2011 og 2012.

Úlfur Blandon þjálfaði Gróttu á síðasta tímabili og Ásgeir Aron Ásgeirsson var honum til aðstoðar.

Úlfur hætti á dögunum til að taka við kvennaliði Vals og í vikunni varð ljóst að Ásgeir myndi ekki vera áfram aðstoðarþjálfari.

Grótta komst aftur upp í Inkasso-deildina í sumar eftir eins árs dvöl í 2. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.