Fotbolti.net
29.10.17 - 13:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sæþór Olgeirsson til KA (Staðfest)

Sæþór er kominn í gult.

Sæþór er kominn í gult.

Canon

Mynd: KA

Sæþór Olgeirsson var rétt í þessu að skrifa undir tveggja ára samning við KA. Þetta segir á heimasíðu Akureyrarliðsins.

Sæþór er 19 ára sóknarmaður sem kemur frá Völsungi.

Hann fór á kostum í sumar í 2. deild karla og var markahæsti leikmaður deildarinnar, langmarkahæstur með 23 mörk í 21 leik.
„Þó nokkur félög voru á eftir Sæþóri enda spennandi leikmaður þar á ferð en Sæþór ákvað að taka slaginn með KA og verður gaman að fylgjast með honum í Pepsi-deildinni næsta sumar,\" segir í frétt sem birtist á heimasíðu KA núna áðan.

„Sæþór er kraftmikill markaskorari sem KA bindur miklar vonir við í framtíðinni,\" segir einnig.

Sæþór hefur mikið komið við sögu í slúðurpökkunum hér á Fótbolta.net, en þar hefur hann einnig verið orðaður við nágranna KA í Þór. Hann valdi hins vegar KA.

Sæþór er enn einn leikmaður KA sem kemur úr Völsungi upprunalega. Aðrir leikmenn KA sem hafa leikið með Völsungi eru til að mynda Elfar Árni Aðalsteinsson, Ásgeir Sigurgeirsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson og bróðir hans Hrannar Björn.

KA endaði í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.