Fotbolti.net
29.10.18 - 20:09
Ívan Guðjón Baldursson

Julen Lopetegui rekinn (Staðfest)

Julen Lopetegui rekinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Julen Lopetegui hefur verið rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Real Madrid aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið ráðinn.
Dvöl Lopetegui hjá Real hefur verið ansi umdeild en hann fékk starfið við afar sérstakar kringumstæður í sumar, sem leiddu til þess að hann var rekinn úr þjálfarastól spænska landsliðsins degi fyrir upphaf heimsmeistaramótsins í Rússlandi.

Santiago Solari, þjálfari B-liðs Real Madrid, tekur við aðalliðinu þar til réttur arftaki finnst. Antonio Conte hefur verið orðaður við starfið en viðræður hans við Real stöðnuðu í dag.

Lopetegui er rekinn degi eftir vandræðalegt 5-1 tap gegn Barcelona í El Clasico á Camp Nou. Þetta var þriðja tap liðsins í röð í deildinni og það fimmta í síðustu sjö leikjum í öllum keppnum.

Lopetegui dugði í rétt rúma fjóra mánuði hjá Real, sem er stysti tími sem nokkur þjálfari hefur verið við stjórnvölinn hjá félaginu síðan Mariano García Remon var látinn fara eftir þrjá mánuði árið 2004.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.