29.10.18 - 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Stephany Mayor og Bianca framlengja við Þór/KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mexíkósku landsliðskonurnar Sandra Stephany Mayor Gutierrez og Bianca Sierra eru búnar að framlengja samninga sína við Þór/KA.
Þetta eru gríðarlega mikilvægar fréttir fyrir félagið enda hefur Sandra verið einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar undanfarin ár.
Sandra er sóknarmaður og hefur gert 55 mörk í 64 leikjum með Þór/KA á meðan Bianca er öflugur varnarmaður sem á 42 leiki að baki fyrir félagið.
„Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu magnað það er að þessu snjöllu knattspyrnukonur ætli að vera áfram í herbúðum Þórs/KA. Báðar eru þær miklir leiðtogar og fyrirmyndir góðar og ungum iðkendum mikil hvatning," segir meðal annars á vefsíðu Þórs.

Í Þór/KA fréttum er þetta helst. Fany og Bianca skutust "heim" til að undirrita nýja samninga. #ÞórKA #fotboltinet #MexicanPower
— Þór/KA (@thorkastelpur) October 29, 2018
This just in, @StefMayor & @Bfromthe_BAYY are back "home" for a few days to sign new contracts. Excellent! pic.twitter.com/BGu7lLMxEZ
Heimild: thorsport