Fotbolti.net
29.10.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Birkir Hlyns ráðinn aðstoðarþjálfari ÍBV (Staðfest)

Birkir Hlyns ráðinn aðstoðarþjálfari ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Kvennaboltinn
Birkir Hlynsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV í Pepsi Max-deildinni.

Andri Ólafsson tók við þjálfun ÍBV af Jóni Óla Daníelssyni í haust og Birkir verður honum til halds og trausts.
Birkir er að ná sér í þjálfararéttindi hjá KSÍ en hefur áður þjálfað KFS. Saman munu þeir einnig þjálfa 3. flokk karla.

„Birkir er hárskeri, trillusjómaður og lífskúnster og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til ÍBV!" segir á heimasíðu ÍBV.

Faðir Birkis er Hlynur Stefánsson sem var fyrirliði ÍBV þegar liðið varð Íslandsmeistari 1997 og 1998.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.