Fotbolti.net
29.10.26 - 14:02
Elvar Geir Magnússon

Heimir skrifaði undir þriggja ára samning við ÍA (Staðfest)

Heimir skrifaði undir þriggja ára samning við ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍA. Skagamenn borguðu Fylki nokkrar milljónir til að fá hann lausan frá Fylki.

Hann tekur við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni sem var látinn fara eftir nýafstaðið tímabil. ÍA endaði í fjórða sæti Bestu deildarinnar í sumar.

Heimir tók við Fylki fyrir ári síðan en liðið tapaði gegn Þrótti í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar og komst ekki upp um deild.
Heimir er gríðarlega sigursæll, gerði FH fjórum sinnum að Íslandsmeisturum sem þjálfari, gerði Val að Íslandsmeisturum 2020 og vann einnig deild og bikar með HB í Færeyjum. Heimir er leikjahæsti þjálfarinn í Bestu deild karla.

Fréttin verður uppfærð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.27+5164
2KR27+3556
3Fram27+947
4ÍA27-138
5Breiðablik27-336
6Keflavík27-1130
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.