29.10.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað gerist eftir fallið? - Ólíklegt að Telma verji markið

Telma Ívarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur féll úr Bestu deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Telma er eftirsótt af félögum í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Telma Ívarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þær ætluðu klárlega að taka næstu skref og verða eitt af bestu liðunum, eitt af þessum stóru liðum," sagði Arnar Páll Garðarsson þegar rætt var um Víking í Uppbótartímanum, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi.
Víkingar áttu erfitt sumar og féllu úr Bestu deildinni, enduðu í neðsta sæti deildarinnar. Þetta eru mikil vonbrigði þar sem fyrir tímabilið var Víkingum spáð þriðja sæti deildarinnar.

„Núna eru þær fallnar og örugglega fullt af leikmönnum sem hugsa sér til hreyfings," sagði Arnar. „Þá veltir maður fyrir sér hvaða leið þær ætla að fara núna, hvort þær ætla að gefa í og fara upp strax eða breyta um stefnu og byggja upp á yngri leikmönnum."
„Þetta er óskrifað blað núna hvað Víkingur er kvennamegin. Við getum ekki talað um Víking sem stórveldi í kvennafótbolta þó þær hafi unnið einn bikarmeistaratitil."
Afar ólíklegt að hún verji markið í Lengjudeildinni
Einn af þeim leikmönnum sem hlýtur að vera að skoða í kringum sig er markvörðurinn Telma Ívarsdóttir sem kom til Víkinga á miðju tímabili.
„Mér finnst ólíklegt að Telma sé að fara að verja markið í Lengjudeildinni," sagði Snæbjört Pálsdóttir en Telma er hluti af markvarðarsveit íslenska landsliðsins. „Hún er í samkeppni þar inn í landsliðinu."
„Ég held að það séu að sama skapi stórir póstar þarna sem vilja spila á hærra stigi. Að einhverju leyti eru þetta samt leikmenn sem hafa áður spilað saman í Lengjudeildinni. Kannski skulda þær sjálfri sér það og félaginu að komast aftur beint upp."
„Það er held ég ekki að fara að gerast," sagði Arnar um möguleikann á að Telma spili í Lengjudeildinni og bætti við að hún hefði verið stór ástæða fyrir því að liðið hefði átt möguleika á að halda sér uppi fram í lokaumferðina. „Maður veltir fyrir sér hvort hún sé með ákvæði í samningi sínum þar sem hún kemur inn í liðið í vondri stöðu."
Í risastóra íslenska slúðurpakkanum sem birtist hér á Fótbolta.net á dögunum var sagt frá því að Telma væri eftirsótt af félögum í Bestu deildinni. Hún er uppalin fyrir austan í Þrótti Neskaupsstað og Fjarðabyggð, en hefur leikið stærstan hluta ferilsins í Breiðabliki.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í Uppbótartímanum hér fyrir neðan.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti