Fotbolti.net
29.10.26 - 10:29
Elvar Geir Magnússon

Hver tekur við Fylki?

Ólafur Ingi Skúlason er líklegastur til að taka við Fylki.

Ólafur Ingi Skúlason er líklegastur til að taka við Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Þjálfarakapallinn er svo sannarlega í fullum gangi og Fylkir tilkynnti í gær að Heimir Guðjónsson væri búinn að yfirgefa félagið, hann er að fara að taka við ÍA. Fylkismenn eru í Lengjudeildinni og töpuðu í úrslitaleik umspilsins á liðnu tímabili.

Til gamans setti Fótbolt.net saman lista yfir kosti sem Fylkir geti horft til. Þar er einn einstaklingur langlíklegastur.
Líklegastur:
Ólafur Ingi Skúlason
Ólafur Ingi er einn dáðasti sonur Fylkis. Hann var látinn fara frá Breiðabliki þrátt fyrir að skila bikarmeistaratitli í hús. Ef hann vill skella sér strax aftur í hringiðuna er mjög líklegt að starfið hjá uppeldisfélaginu standi honum til boða.

Líka líklegir:
Davíð Smári Lamude, Aron Baldvin Þórðarson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Þrír sem hafa líklega mikinn áhuga á starfinu hjá Fylki. Davíð er án félags eftir að hafa hætt hjá Njarðvík, Aron Baldvin er aðstoðarþjálfari Víkings en hefur áhuga á að færa sig upp í að verða aðalþjálfari og framtíð Sigga Ragga er í óvissu eftir frábæran árangur í Færeyjum.

Gæti fengið símtalið
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiði tókst ekki að halda KA uppi en stimplaði sig þó inn í þjálfarabransann að nýju,

Áhugaverðir kostir
Borja Martin, Jökull Elísabetarson og Lúðvík Gunnarsson
Spánverjinn Borja Martin gerði frábæra hluti með að halda Völsungi uppi í Lengjudeildinni og var valinn þjálfari ársins, Jökull Elísabetarson leitar að nýju þjálfarastarfi eftir að hafa verið rekinn frá Stjörnunni og Lúðvík Gunnarsson hefur gert athyglisverða hluti með U21 landsliðið.

Önnur nöfn sem gætu komið til tals: Túfa, Lárus Orri Sigurðsson, Jón Þór Hauksson, Hermann Hreiðarsson.
Davíð Smári Lamude er laus.

Davíð Smári Lamude er laus.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin Þórðarson.

Aron Baldvin Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.