Fotbolti.net
29.11.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Javier Aguirre tekur við Espanyol (Staðfest)

Javier Aguirre tekur við Espanyol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mexíkóinn reyndi Javier Aguirre hefur verið ráðinn þjálfari spænska félagsins Esapnyol.
Aguirre tekur við liðinu af Mauricio Pochettino sem var rekinn í fyrradag eftir slaka byrjun Espanyol á tímabilinu.

Espanyol er með níu stig á botni La Liga en liðið tapaði 2-0 gegn Getafe um síðustu helgi.

Aguirre á nú að reyna að snúa gengi liðsins við en hann hefur mikla reynslu í spænska boltanum eftir að hafa þjálfað Osasuna, Atletico Madrid og Real Zaragoza.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.