29.11.12 - 13:33
Magnús Már Einarsson
Luiz Felipe Scolari tekur við brasilíska landsliðinu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luiz Felipe Scolari hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Brasilíu. Scolari tekur við keflinu af Mano Menezes sem var rekinn á föstudaginn í síðustu viku.
Scolari mun stýra Brasilíumönnum á HM í heimalandinu eftir tvö ár. Scolari stýrði Brasilíumönnum þegar liðið varð síðast heimsmeistari árið 2002 og hann vonast til að vinna titilinn aftur eftir tvö ár.
,,Við eigum að vinna titilinn. Við erum ekki sigurstranglegastir í augnablikinu en við ætlum að verða sigurstranglegastir í keppninni,\" sagði Scolari á fréttamannafundi í dag.
,,Þriðja eða fjórða sæti er ekki gott fyrir þjóð sem hefur unnið fimm heimsmeistaratitla.\"
Scolari mun fá góða aðstoð í starfinu því Carlos Alberto Parreira verður tæknilegur ráðgjafi hjá liðinu. Parreira er einnig reynslubolti en hann stýrði Brasilíumönnum þegar liðið vann HM í Bandaríkjunum árið 1994.

Heimild: Reuters