29.11.17 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Carver verður Pardew til aðstoðar (Staðfest)

John Carver.

Mynd: Getty Images

John Carver.

Mynd: Getty Images
Alan Pardew var í dag ráðinn stjóri West Bromwich Albion en hann gerði samning til sumarsins 2020.
Á sama tíma hætti Gary Megson hjá félaginu. Megson var aðstoðarstjóri Tony Pulis sem var rekinn á dögunum. Megson stýrði WBA einnig í síðustu tveimur leikjum eftir að Pulis var rekinn.
Pardew hefur ákveðið að fá John Carver, fyrrum aðstoðarmann sinn hjá Newcastle, sem aðstoðarmann hjá WBA.

Hinn 52 ára gamli Carver spreytti sig sem stjóri Newcastle síðari hluta tímabilsins 2014/2015 en liðið bjargaði sér þá naumlega frá falli.
Carver fór síðan til Kýpur þar sem hann þjálfaði Omonia en hann var þjálfari liðsins þegar íslenski landsliðsmaðurinn Kári Árnason fór þangað fyrr á þessu ári.