Fotbolti.net
29.11.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kenneth Hogg tekur næsta sumar með Njarðvík (Staðfest)

Kenneth Hogg.

Kenneth Hogg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík og skoski framherjinn Kenneth Hogg hafa gert með sér samning um að Hogg leiki með liðinu næsta sumar.
Hogg kom til Njarðvíkur um mitt sumar 2017 eftir að hafa áður leikið á Sauðárkróki með Tindastóli.

Hann skoraði fjögur mörk í 22 leikjum í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar. Njarðvík kom á óvart og endaði í sjötta sæti deildarinnar eftir að hafa komið upp úr 2. deild árið áður.

Á dögunum framlengdi Njarðvík við fjóra leikmenn og bætti við sig einum.

Atli Geir Gunnarsson, fæddur 2000, kom til liðsins frá nágrönnunum í Keflavík. Hann er uppalinn Njarðvíkingur og kom við sögu í tveimur Pepsi-deildarleikjum í sumar.

Leikmennirnir sem framlengdu eru Brynjar Freyr Garðarsson, Bergþór Ingi Smárason, Arnar Helgi Magnússon og Krystian Wiktorowicz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.