Sóknarmaðurinn hávaxni Stefan Alexander Ljubicic hefur gengið í raðir lettnesku meistarana í Riga FC.
Stefan var á mála hjá Brighton þar sem hann spilaði með unglinga og varaliðinu en varð samningslaus í sumar.
Hann gekk þá í raðir Grindavíkur þar sem hann skoraði eitt mark í átta leikjum í Pepsi Max-deildinni en Grindavík féll úr deildinni.
Stefan er 20 ára gamall en hann á fjóra leiki með U21-landsliði Íslands.
Lettneska deildin er leikin frá mars og fram í nóvember.
Athugasemdir