Jan Oblak, landsliðsmarkvörður Slóveníu og aðalmarkvörður Atletico Madrid, er af mörgum talinn vera einn af bestu markvörðum heims.
Oblak er 27 ára gamall og spilaði deildarleik númer 200 fyrir Atletico Madrid er liðið lagði Valencia að velli í gær. Oblak hélt hreinu í 0-1 sigri og er hann því búinn að halda hreinu í 112 af 200 fyrstu deildarleikjum sínum með Atletico.
Hann hefur aðeins fengið 123 mörk á sig í þessum 200 leikjum, sem er met í La Liga.
Atletico er með 23 stig eftir 9 umferðir og markatöluna 19-2.
Athugasemdir