Derby County 1 - 2 QPR
1-0 Tom Lawrence ('10 )
1-1 Chris Willock ('50 )
1-2 Andre Gray ('90 )
1-0 Tom Lawrence ('10 )
1-1 Chris Willock ('50 )
1-2 Andre Gray ('90 )
QPR er komið upp í þriðja sæti ensku B-deildarinnar eftir 2-1 sigur á Derby County í kvöld en það var varamaðurinn Andre Gray sem gerði sigurmarkið undir lok leiks.
Tom Lawrence kom lærisveinum Wayne Rooney í Derby yfir á 10. mínútu leiksins og stóðu leikar þannig í hálfleik. Í byrjun síðari hálfleiks jafnaði Chris Willock metin,
Andre Gray kom inná sem varamaður hjá QPR á 76. mínútu og reyndist hann hetjan. Sigurmark hans kom undir blálokin og náði hann í öll stigin fyrir gestina.
QPR er í 3. sæti með 35 stig en Derby með 1 stig í neðsta sæti deildarinnar.
Athugasemdir