Fotbolti.net
20.09.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sandra María á leið í aðgerð - Ekki með í mikilvægum landsleikjum

Sandra María á leið í aðgerð - Ekki með í mikilvægum landsleikjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Sandra María Jessen var í byrjunarliði Köln í 5-2 tapi gegn Glódísi Perlu Viggósdóttir og stöllum í Bayern í gær.

Sandra þurfti hins vegar að fara af velli snemma í seinni hálfleik vegna meiðsla. Hún meiddist á hné og sagði í viðtali við RÚV að hún færi í aðgerð á morgun.
„Það er ekki enn vitað nákvæmlega hvað verður gert, hvort það þurfi að taka hluta af liðþófanum af eða hvort það verði hægt að sauma hann saman. Lengdin á bataferlinu fer svolítið eftir því. Svo getur náttúrlega komið eitthvað óvænt í ljós þegar hnéð verður opnað á morgun," sagði Sandra.

Íslenska landsliðið mætir Króatíu í tveimur leikjum um sæti á HM 9. og 13. október en Sandra verður ekki með.

„Eins mikið og ég hefði viljað spila þessa leiki þá mun ég missa af þeim. Ég treysti því bara að stelpurnar klári þetta verkefni. Þær eru með gæðin í það," sagði Sandra.

Heimild: RÚV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.