Fotbolti.net
20.09.26 - 21:00
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu mörk Íslendinganna og rauða spjald Kristals í frábærum sigri Brann

Sjáðu mörk Íslendinganna og rauða spjald Kristals í frábærum sigri Brann
Canon

Mynd: EPA

Íslendingaliðið Brann vann frækinn sigur gegn Bodö/Glimt 2-1 í norska boltanum í dag. Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason skoruðu mörk Brann í leiknum.

Bodö/Glimt komst yfir í leiknum en Eggert jafnaði eftir um stundarfjórðungs leik. Kristall skoraði svo sigurmarkið á 57. mínútu.

Kristall fékk svo rautt spjald eftir VAR skoðun á 68. mínútu eftir að hafa rennt sér í boltann. Tæklingin var heldur glæfraleg og þó Kristall hafi farið í boltann þá fór hann einnig í andstæðinginn og eftir að dómarinn fór í skjáinn fór rautt spjald á loft.
Einum færri náði Brann að halda út og vinna 2-1. Liðið er í sjöunda sæti með 29 stig. Viking og Bodö/Glimt berjast um meistaratitilinn en liðin eru jöfn á toppnum með 50 stig.

Það voru þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í dag þar sem Sævar Atli Magnússon byrjaði auk Eggerts og Kristals. Kjartan Már Kjartansson kom af bekknum í lok leiksins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.