þri 29. nóvember 2022 13:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Jóhannsson í Fram (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson er genginn í raðir Fram eftir fimm tímabil í Grindavík. Aron skrifar undir tveggja ára samning við Fram.

Hann er uppalinn í Haukum og spilaði þar sinn fyrsta mótsleik árið 2010.

Aron er fæddur árið 1994 og á að baki 43 leiki og sjö mörk í efstu deild og 181 leik og 31 mark í B-deild. Síðast lék hann í efstu deild tímabilið 2019.

„Aron er öflugur miðjumaður, líkamlega sterkur og með góðan skotfót. Nonni hefur fylgst lengi með honum og lagði áherslu á að fá hann til liðs við Fram. Við erum því ánægð að hafa tryggt okkur þjónustu Arons og hlakkar til að sjá hann í bláu treyjunni," sagði Agnar Þór Hilmarsson formaður knd. Fram.

Komnir
Aron Jóhannsson frá Grindavík

Farnir
Alex Freyr Elísson í Breiðablik
Almarr Ormarsson hættur


Athugasemdir
banner
banner
banner