Fotbolti.net
29.12.16 - 19:42
Jóhann Ingi Hafþórsson

Kolbeinn farinn frá Galatasaray (Staðfest)

Kolbeinn náði aldrei að spila í þessari treyju.

Kolbeinn náði aldrei að spila í þessari treyju.

Canon

Mynd: Heimasíða Galatasaray

Tyrkneska félagið Galatasaray hefur staðfest að lánssamningi Kolbeins Sigþórssonar hefur verið rift.
Kolbeinn kom á láni frá franska liðinu Nantes í sumar en vegna meiðsla hefur hann ekkert spilað með Galatasaray.

Framherjinn á enn þá þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum við Nantes, svo það verður forvitnilegt að sjá hvað hann gerir næst.

Kolbeinn skoraði þrjú mörk í 26 leikjum fyrir Nantes á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.