29.12.16 - 09:37
Magnús Már Einarsson
Tevez til Shanghai (Staðfest) - Langlaunahæstur í heimi

Mættur til Kína.

Mynd: Getty Images

Mættur til Kína.

Mynd: Getty Images
Kínverska félagið Shanghai Shenua hefur keypt framherjann Carlos Tevez frá Boca Juniors í Argentínu.
Hinn 32 ára gamli Tevez verður nú launahæsti leikmaður í heimi með yfirburðum en hann þénar 615 þúsund pund eða 86 milljónir króna í laun á viku.
Hinn 32 ára gamli Tevez verður nú launahæsti leikmaður í heimi með yfirburðum en hann þénar 615 þúsund pund eða 86 milljónir króna í laun á viku.
Tevez snéri aftur til Boca Juniors í fyrra eftir að hafa leikið með West Ham, Manchester United, Manchester City og Juventus í Evrópu.
Hann ætlar nú að reyna að hjálpa Shanghai að gera betur í Kína heldur en á síðasta tímabili þegar niðurstaðan varð fjórða sæti. Þá spiluðu leikmenn eins og Demba Ba, Obafemi Martins og Fredy Guarin með liðinu.
Gus Poyet er þjálfari Shanghai en hann tók við liðinu eftir að hafa verið rekinn frá Real Betis í vetur.
Laun Tevez gróflega áætlað
4,5 milljarðar króna á ári
86 milljónir króna á viku
12 milljónir króna á dag
515 þúsund krónur á klukkutíma
8500 krónur á mínútu
140 krónur á sekúndu