Fotbolti.net
30.01.17 - 11:06
Magnús Már Einarsson

Eggert Gunnþór til SönderjyskE (Staðfest)

Eggert Gunnþór til SönderjyskE (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danska félagið SönderjyskE hefur fengið varnar og miðjumanninn Eggert Gunnþór Jónsson í sínar raðir frá Fleetwood Town á Englandi.

Hinn 28 ára gamli Eggert þekkir aðeins til í danska boltanum en hann spilaði með FC Vestjælland fyrri hluta árs 2015.

„Við höfum fylgst með Eggerti síðan hann spilaði með FC Vestsjælland og ég hlakka til að sjá hann í ljósbláu treyjunni,\" sagði Hans Jörgen Haysen, yfirmaður íþróttamála, hjá SönderjyskE.

Eftir dvölina hjá Vestjælland samdi Eggert við Fleetwood árið 2015. Í vetur hefur hann ekki átt fast sæti í liðinu og í síðustu viku var ljóst að hann væri á vorum.

Viking í Noregi hafði áhuga á að fá Eggert í sínar raðir og hann skoðaði aðstæður hjá félaginu. Á endanum hafði SönderjyskE hins vegar betur í baráttunni um Eggert.
Eggert stóðst læknisskoðun og skrifaði undir í dag en á morgun fer hann með liði SönderjyskE til Spánar í æfingaferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.