30.01.17 - 16:32
Magnús Már Einarsson
Gibson og Oviedo til Sunderland (Staðfest)

Bryan Oviedo og Darron Gibson.

Mynd: Sunderland

Bryan Oviedo og Darron Gibson.

Mynd: Sunderland
Sunderland hefur keypt Darron Gibson og Bryan Oviedo í sínar raðir frá Everton á 7,5 milljónir punda samanlagt.
David Moyes, stjóri Sunderland, keypti báða leikmenn til Everton á sínum tíma og hann vonast núna til að þeir geti hjálpað Sunderland í fallbaráttunni sem er framundan.

Gibson og Oviedo hafa ekki verið inni í myndinni hjá Ronald Koeman, stjóra Everton, á þessu tímabili og fengu grænt ljós á að fara. Gibson hefur einungis spilað einn leik á tímabilinu en Oviedo hefur leikið sjö leiki.
Hinn 26 ára gamli Oviedo gerði þriggja og hálfs árs samning við Sunderland en hinn 29 ára gamli Gibson gerði eins og hálfs árs samning.
Gibson kom til Everton frá Manchester United á sínum tíma en Oviedo kom frá FC Kaupmannahöfn.