30.01.17 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Helder Costa keyptur til Wolves fyrir metfé (Staðfest)

Helder Costa í leik með yngri landsliði Portúgala.

Mynd: Getty Images

Kantmaðurinn Helder Costa er búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við Wolves. Úlfarnir, sem eru í neðri hluta Championship deildarinnar, þurfa að greiða um 13 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Costa kom til Úlfanna á láni í haust og hefur verið besti maður félagsins á tímabilinu. Hann lagði til að mynda upp bæði mörkin í 2-1 sigri á Liverpool í bikarnum um helgina.

Costa er nýorðinn 23 ára gamall og á rúmlega 60 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgala.
Costa er uppalinn hjá Benfica og á 72 leiki að baki fyrir B-lið félagsins en hefur aldrei fengið að spreyta sig með aðalliðinu í portúgölsku deildinni.
Kantmaðurinn var allt síðasta tímabil á láni hjá Monaco, þar sem hann skoraði 3 mörk í 25 deildarleikjum er félagið endaði í 3. sæti frönsku deildarinnar.