30.01.17 - 12:01
Magnús Már Einarsson
Kári Árna til Omonia (Staðfest)

Kári Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AC Omonia Nicosia á Kýpur hefur keypt Kára Árnason í sínar raðir frá Malmö í Svíþjóð. Omonia staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag en Kári skrifaði undir eins og hálfs árs samning.
Hinn 34 ára gamli Kári kom til Malmö frá enska félaginu Rotherham sumarið 2015. Hann var í algjöru lykilhlutverki þegar Malmö varð sænskur meistari á síðasta tímabili sem og í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.
„Þegar Kári kom til Malmö setti hann strax mark sitt á liðið með leiðtogahæfileikum. Hann átti stóran þátt í að koma okkur í Meistaradeildina og hann var einn af lykilmönnum þegar við unnum sænsku deildina 2016,\" sagði Daniel Andersson, yfirmaður íþróttamála hjá Malmö eftir skiptin í dag.
AC Omonia er í fimmta sæti í úrvalsdeildinni á Kýpur í augnablikinu. Fimm umferðir eru eftir í deildarkeppninni í Kýpur en henni lýkur í byrjun mars. Í kjölfarið tekur við úrslitakeppni sex efstu liðanna.
John Carver, fyrrum stjóri Newcastle, þjálfar Omonia en Nikos Dabizas, fyrrum leikmaður Newcastle, er yfirmaður íþróttamála þar. Matt Derbyshire, fyrrum framherji Blackburn, leikur með liðinu en hann var liðsfélagi Kára hjá Rotherham á sínum tíma.
Hér að neðan má sjá Kára og Dabizas eftir undirskriftina.

Παίκτης της ΟΜΟΝΟΙΑΣ ο Ισλανδός διεθνής, Κάρι Άρνασον #OMONOIA #ACOmoniaNicosia https://t.co/JN7lnRGHmL pic.twitter.com/6gnZlPOCNg
— AC Omonia Nicosia (@ACOmoniaNicosia) January 30, 2017