Fotbolti.net
30.01.17 - 10:22
Magnús Már Einarsson

Patrick van Aanholt til Crystal Palace (Staðfest)

Patrick van Aanholt til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Crystal Palace

Crystal Palace hefur keypt vinstri bakvörðinn Patrick van Aanholt frá Sunderland á 14 milljónir punda.

Sam Allardyce, stjóri Crystal Palace, hefur verið í leit að liðsstyrk fyrir fallbaráttuna sem er framundan og hann hefur nú landað van Aanholt.
Stóri Sam þekkir van Aanholt síðan hann stýrði Sunderland á síðasta tímabili.

Hollendingurinn óskaði eftir sölu frá Sunderland og eftir viðræður í síðustu viku náðu félögin samkomulagi um kaupverð.

Hinn 26 ára gamli van Aanholt hefur leikið með Sunderland síðan árið 2014 en hann kom til félagsins frá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.