30.01.18 - 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bartra frá Dortmund til Real Betis (Staðfest)

Bartra hefur yfirgefið Dortmund og er búinn að semja við Real Betis í heimalandinu, Spáni.

Mynd: Getty Images

Real Betis hefur staðfest kaup á varnarmanninum Marc Bartra en hann kemur til liðsins frá Borussia Dortmund.
Real Betis borgar 20 milljónir evra fyrir Bartra sem hefur skrifað undir samning til 2023 við Betis.

Bartra hefur fallið aftar í goggunarröðina eftir að Peter Stöger tók við liðnu. Hann var orðinn fimmti kosturinn í miðvarðarstöðuna á eftir Sokratis, Omer Toprak, Manuel Akanji og Dan-Axel Zagadou.
Real Betis ákvað að nýta sér þetta og hefur keypt þennan fyrrum varnarmann Barcelona.
Bartra hefur verið mikið í umræðunni eftir sprengjuárás sem var gerð á liðsrútu Dortmund í fyrra. Bartra var sá eini sem slasaðist, en fjölmiðlar í Þýskalandi hafa talað um að hann sé ekki enn búinn að jafna sig á árásinni. Nú er undir Bartra komið að sýna það, að hann sé búinn að jafna sig á þessari annars hræðilegu árás.
Real Betis er í 13. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.

Thank you BVB family! I have no words to describe the moments and feelings that I have lived in Dortmund with you and I will never forget it. Danke für alles Borussen! pic.twitter.com/DKBCRPWd1Q
— Marc Bartra (@MarcBartra) January 30, 2018