30.01.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dalvík/Reynir fær bandarískan markvörð (Staðfest)

Mynd: Dalvík/Reynir Facebook

Mynd: Dalvík/Reynir Facebook
Dalvík/Reynir er búið að semja við 28 ára gamlan bandarískan markvörð sem mun verja mark félagsins á komandi tímabili.
Markvörðurinn heitir John Connolly og lék hann fyrir Sacramento Gold FC í bandarísku D-deildinni á síðasta tímabili.

Connolly skaraði framúr og skrifaði undir skammtímasamning við Northern Rangers FC í Tasmaníu síðasta haust.
Connolly var meðal bestu leikmanna Sacramento Gold og var fyrirliði félagsins. Hann kemur til landsins í byrjun mars og tekur væntanlega þátt í Lengjubikarnum.
Dalvík/Reynir endaði í 8. sæti 3. deildarinnar á síðasta tímabili og fékk 40 mörk á sig í 18 leikjum.

Heimild: Dalvík/Reynir á Facebook