30.01.18 - 22:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emerson til Chelsea (Staðfest)

Emerson er kominn til Chelsea.

Mynd: Chelsea

Emerson er kominn til Chelsea.

Mynd: Chelsea
Chelsea hefur keypt bakvörðinn Emerson Palmieri frá Roma. Þetta hefur nú fengist staðfest, en fyrr í kvöld fór í dreifingu <a href=\"http://www.fotbolti.net/news/30-01-2018/mynd-af-emerson-hja-chelsea-lekid-a-netid\" target=\"_blank\">mynd af Emerson í höfuðstöðvum Chelsea</a> þar sem hann virtist vera nýbúinn að skrifa undir samning við Lundúnafélagið. Nú hefur Chelsea staðfest skiptin og er hann orðinn leikmaður félagsins.
Samkvæmt Sky Sports borgar Chelsea Roma 17,6 milljónir punda fyrir Emerson. Ofan á það gætu bæst við 7 milljónir punda.
Samkvæmt Sky Sports borgar Chelsea Roma 17,6 milljónir punda fyrir Emerson. Ofan á það gætu bæst við 7 milljónir punda.
Hinn 23 ára gamli Emerson, sem er vinstri bakvörður, hefur fengið treyju númer 33 hjá Chelsea.
„Ég kom hingað vegna þess að þetta er frábært félag með frábæra sögu. Í dag er einn af draumum mínum að rætast,\" sagði Emerson eftir að skiptin gengu í gegn.
Chelsea er einnig að kaupa Olivier Giroud frá Arsenal.