Fotbolti.net
30.01.18 - 18:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Harrison til Man City (Staðfest) - Lánaður til Middlesbrough

Jack Harrison.

Jack Harrison.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur fest kaup á miðjumanninum Jack Harrison en hann kemur til liðsins frá New York City FC í Bandaríkjunum. Kaupverðið á honum er sagt vera í kringum 4 milljónir punda. Hann hefur strax verið lánaður til Middlesbrough.

Harrison byrjaði að æfa fótbolta með Liverpool sex ára gamall en sjö ára var hann kominn til Manchester United. Þar æfði hann til fjórtán ára aldurs og sautján ára gamall hélt hann til New York, þar sem hann byrjaði að æfa með Manhattan Soccer Club.

Harrison, sem er 21 árs, hefur gert góða hluti í New York og á tvo U21 landsleiki að baki fyrir England.
Nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga á honum en það var Manchester City sem hreppti hann. City er systurfélag New York City FC og hafði forskot á önnur lið í baráttunni um hann.

„Ég hef notið tímans í New York og ég vil þakka Patrick Vieira og þjálfaraliði hans fyrir hjálpina. Ég hlakka til að prófa að spila á Englandi,\" sagði Harrison eftir að skiptin gengu í gegn.

Hann hefur verið lánaður strax til Middlesbrough sem er í augnablikinu í áttunda sæti Championship-deildarinnar.

✍️ We are delighted to announce the signing of @Harrison_Jack11 from @NYCFC.

He now joins @Boro on loan until the end of the season.

Good luck, Jack! 👍https://t.co/k9kxoLEPKp

— Manchester City (@ManCity) January 30, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.