30.01.18 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Julio Cesar verður hjá Flamengo út ferilinn (Staðfest)

Julio Cesar var aðalmarkvörður Brasilíu í 8 ár.

Mynd: Getty Images

Julio Cesar er 38 ára gamall og hættur að fá spilatíma hjá Benfica, þar sem hann hefur verið undanfarin ár.
Markvörðurinn ólst upp hjá Flamengo í Brasilíu og hefur ákveðið að snúa aftur til að klára ferilinn hjá uppeldisfélaginu.

Á ferlinum hefur Julio Cesar unnið flest sem hægt er að vinna. Hann á 87 landsleiki að baki fyrir Brasilíu og vann Meistaradeildina með Inter.
Hann er búinn að skrifa undir þriggja mánaða samning við Flamengo og mun hann leggja hanskana á hilluna að þeim tíma loknum.
„Ég er ánægður með að vera kominn aftur. Ég vil vinna titil áður en ég legg hanskana á hilluna og klára ferilinn með stíl,\" sagði Cesar.
„Ég er sá maður sem ég er í dag þökk sé uppeldinu hjá Flamengo. Ég fékk önnur tilboð en ég var alltaf að fara að koma hingað, það var aldrei spurning.\"