30.01.18 - 13:16
Elvar Geir Magnússon
Laporte til Man City (Staðfest)

Laporte fær treyju númer 14 en kaupverðið er 57,2 milljónir punda.

Mynd: Manchester City

Laporte fær treyju númer 14 en kaupverðið er 57,2 milljónir punda.

Mynd: Manchester City
Manchester City hefur keypt franska miðvörðinn Aymeric Laporte frá Athletic Bilbao. Laporte er 23 ára gamall.
Hann hefur verið einn besti varnarmaður La Liga síðustu ár en hefur ekki enn leikið sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland.
Hann er líklega hugsaður sem félagi John Stones í hjarta varnar City næstu árin.

„Ég er mjög ánægður með að vera hér. City er félag með mikinn metnað og er eitt besta lið Evrópu. Ég hlakka til að vinna undir Pep Guardiola og reyna að hjálpa félaginu að ná árangri,\" segir Laporte.
Laporte er örvfættur og er þekktur fyrir yfirvegun, styrk og sendingagetu í vörninni.
Hann lék 222 leiki fyrir Bilbao og skoraði tíu mörk. Hann var valinn í lið ársins í La Liga 2013/14. Hann varð spænskur bikarmeistari með liðinu 2016.

Defensive reinforcements acquired! 💪🇫🇷
— Manchester City (@ManCity) January 30, 2018
Please #welcomeaymeric to the Club! pic.twitter.com/cDu4FWOKlb
Most expensive defenders in history:
— Football__Tweet (@Football__Tweet) January 30, 2018
€84m 🇳🇱 van Dijk
🔴 Liverpool
€65m 🇫🇷 Laporte
🔵 Man City
€57.5m 🇫🇷 Mendy
🔵 Man City
€57m 🏴 Walker
🔵 Man City
€55.6m 🏴 Stones
🔵 Man City
€53.8m 🇫🇷 Mangala
🔵 Man City pic.twitter.com/dTAfC2U9qc