Fotbolti.net
30.01.18 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Martinez fyllir skarð Laporte hjá Bilbao (Staðfest)

Martinez fyllir skarð Laporte hjá Bilbao (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Athletic Bilbao hefur keypt varnarmannin Inigo Martinez frá nágrönnum sínum í Real Sociedad.

Martinez á að fylla skarð Aymeric Laporte sem gekk fyrr í dag til liðs við Manchester City á 65 milljónir evra eða 57 milljónir punda.

Bilbao borgaði riftunarverðið í samningi Martinez sem var 32 milljónir evra eða 28 milljónir punda.
Martinez er 26 ára gamall en hann hafði sjálfur verið orðaður við Manchester City í vetur.

Martinez skrifaði undir samning við Bilbao sem gildir til ársins 2023.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.