30.01.18 - 23:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mata framlengir við Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi Juan Mata sem gerir það að verkum að samningurinn verður framlengdur um eitt ár. Mata er núna samningsbundinn Manchester United til ársins 2019.
Mata kom til United frá Chelsea í janúarglugganum árið 2014, hann er búinn að vera hjá félaginu í fjögur ár.
Hann ætlar að minnsta kosti að taka eitt og hálft ár í viðbót.
<i>„Ég er enn mjög ánægður og stoltur að vera hluti af þessu félagi,\"</i> sagði Mata í kvöld. <i>„Allir þeir sem eru hluti af Manchester United eru í forrétindastöðu, þannig líður mér. Þegar þú verður hluti af þessu félagi, þá verður knattspyrnuferill þinn ekki samur, hann breytist vegna þess að þetta er eitt stærsta félag knattspyrnusögunnar.\"</I>

Um Mata sagði Jose Mourinho, stjóri United: „Mata er mjög mikilvægur. Þeir sögðu að hann væri í vandræðum þegar ég kom og núna er hann að fá framlengingu um eitt ár. Hann er mikilvægur fyrir mig, fyrir félagið og fyrir hina leikmennina.\"