Fotbolti.net
30.01.18 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

McGuane yfirgefur Arsenal fyrir Barcelona (Staðfest)

Marcus McGuane er farinn til Katalóníu.

Marcus McGuane er farinn til Katalóníu.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 18 ára gamli Marcus McGuane hefur yfirgefið Arsenal og er farinn í sólina í Katalóníu. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning við stórveldið Barcelona.

McGuane byrjaði að æfa með Arsenal þegar hann var leikskólaaldri en hefur nú yfirgefið félagið.

Kaupverðið á honum er ekki gefið upp, en samningur hans við Arsenal var að fara að renna út í sumar.
McGuane mun í fyrstu spila með B-liði Barcelona, en A-liðið getur kallað hann upp ef það kýs að gera það.

„Við viljum þakka McGuane fyrir framlag sitt og við óskum honum góðs gengis hjá Barcelona,\" segir á heimasíðu Arsenal.

McGuane spilaði tvo aðalliðsleiki með Arsenal á tímabilinu, en þeir komu báðir í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Good luck, @marcusmcguane58 https://t.co/5KLQrtynj2

— Arsenal FC (@Arsenal) January 30, 2018



A dream come true. Today I signed for the biggest club in the world and tomorrow I start work. What a special day it has been for me and my family. Now I am ready to start this new chapter and challenge🔴🔵 @FCBarcelona @FCBarcelonaB #ForçaBarça #FCBarcelona pic.twitter.com/fHsOb8z6nM

— Marcus McGuane (@marcusmcguane58) January 30, 2018



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.