30.01.18 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Musa aftur til CSKA (Staðfest) - Mætir Íslandi í sumar

Musa hefur spilað 67 landsleiki með Nígeríu.

Mynd: Getty Images

CSKA Moskva hefur fengið framherjann Ahmed Musa á láni frá Leicester út tímabilið.
Musa vildi komast frá Leicester til að fá meiri spiltíma fyrir HM en hann hefur ekki spilað eina mínútu í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Musa verður í eldlínunni með Nígeríu á HM í sumar en liðið mætir Íslandi þann 22. júní.
Hinn 25 ára gamli Musa spilaði með CSKA frá 2012 til 2016 og varð þrívegis rússneskur meistari með liðinu áður en Leicester keypti hann á 16,6 milljónir punda.
Musa kom til Leicester nokkrum vikum eftir að liðið varð enskur meistari og hann var í stuttan tíma dýrastur í sögu félagsins.