30.01.18 - 11:03
Magnús Már Einarsson
Selfoss fær austurríska landsliðskonu (Staðfest)

Sophie var á mála hjá Werder Bremen.

Mynd: Getty Images

Sophie var á mála hjá Werder Bremen.

Mynd: Getty Images

Selfoss hefur fengið austurrísku landsliðskonuna Sophie Maierhofer til liðs við sig. Sophie var í leikmannahópi Austurríkis á EM í Hollandi síðastliðið sumar en hún kom ekki við sögu í 3-0 sigri liðsins á Íslandi á mótinu.
Sophie er 21 árs gömul en hún spilar á miðjunni. Hún á tólf landsleiki að baki með Austurríki.
Í dag er Sophie í háskóla í Bandaríkjunum en hún er væntanleg til Íslands um miðjan maí. Hún spilar síðan með Selfyssingum fram í ágúst áður en hún fer aftur til Bandaríkjanna. Eva Lind Elíasdóttir, leikmaður Selfoss, er í sama skóla og Sophie.
Á meistaraflokksferli sínum hefur Sophie annars spilað með Werder Bremen í Þýskalandi.
Selfoss komst upp í Pepsi-deild kvenna á nýjan leik síðastliðið haust og leikur því á meðal þeirra bestu í sumar.