Fotbolti.net
30.01.18 - 16:15
Magnús Már Einarsson

Swansea lánar Mesa til Sevilla (Staðfest)

Mesa í baráttu við Jesse Lingard.  Þeir gætu mæst í Meistaradeildinni í næsta mánuði.

Mesa í baráttu við Jesse Lingard. Þeir gætu mæst í Meistaradeildinni í næsta mánuði.

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur lánað miðjumanninn Roque Mesa til Sevilla út tímabilið.

Mesa kom til Swansea frá Las Palmas í sumar og bundnar voru miklar vonir við hann.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur hins vegar ekki náð að tryggja sér sæti í byrjunarliði Swansea.

Hann fer nú úr fallbaráttunni í Englandi til Spánar þar sem Sevilla situr í 6. sætinu.
Mesa verður einnig með Sevilla gegn Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.