Fotbolti.net
30.01.18 - 19:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Watford kaupir Lukebakio (Staðfest)

Watford kaupir Lukebakio (Staðfest)
Canon

Mynd: Watford

Watford hefur staðfest kaup á kantmanninum Dodi Lukebakio frá Charleroi í Belgíu. Lukebakio er tvítugur.

Hann skrifaði undir fjögurra- og hálfs árs samning við Watford.

Lukebakio er uppalinn hjá Anderlecht og spilaði þar 18 aðalliðsleiki. Undanfarið hefur hann verið í láni hjá Tolouse í Frakklandi, og síðast hjá Charleroi þar sem hann skoraði þrjú mörk í 20 leikjum.
Lukebakio á leiki með U21 landsliði Belgíu, en hann hefur ákveðið að leika fyrir A-landslið Lýðveldisins Kongó.

Hann er annar leikmaðurinn sem Watford fær í þessum glugga en í fékk félagið Gerard Deulofeu frá Barcelona.

Watford er í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.