30.01.19 - 15:21
Elvar Geir Magnússon
Bandarískur landsliðsmaður til Rangers (Staðfest)

Steven Gerrard, stjóri Rangers.

Mynd: Getty Images

Steven Gerrard, stjóri Rangers.

Mynd: Getty Images
Rangers í Glasgow hefur fengið til sín bandaríska landsliðsmanninn Matt Polster frá Chicago Fire.
Þessi 25 ára leikmaður gerði tveggja og hálfs árs samning en hann getur bæði leikið sem hægri bakvörður og sem miðjumaður.
Polster á einn landsleik fyrir Bandaríkin, vináttulandsleik gegn Bosníu á síðasta ári.

Jordan Rossiter er líklega á leið frá Rangers á láni en Steven Gerrard, stjóri Rangers, býst við því að hann verði sá eini sem fari frá félaginu í janúarglugganum.
Gerrard hefur í þessum mánuði fengið til sín Steven Davis og Jermain Defoe
Rangers er í öðru sæti skosku deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Celtic.
Gerrard hefur í þessum mánuði fengið til sín Steven Davis og Jermain Defoe
Rangers er í öðru sæti skosku deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Celtic.
🗣 Matt Polster: “Now that it's all signed and sealed, I'm ready to play. I've always wanted to challenge myself and I've always wanted to be in a competitive environment."
— Rangers Football Club (@RangersFC) January 30, 2019
📲 Full Story: https://t.co/DA72zI9ndW pic.twitter.com/qspGSolorg